Friðurinn rofinn í friðsælli vetrarbraut
20. mars 2013

Árið 1999 sveif þessi vetrarbraut friðsamlega um geiminn. En skyndilega var friðurinn rofinn með mikilli sprengingu. Um var að ræða ævilok massamikillar stjörnu í einum ofsafengnasta atburði náttúrunnar. Við köllum slík fyrirbæri sprengistjörnur en þær geta skinið skærar en allar stjörnurnar í vetrarbrautinni samanlagt.

Stjörnufræðingar sem rannsökuðu afleiðingar sprengingarinnar tóku þessa fallegu mynd af vetrarbrautinni nálægu. Þau fylgdust með birtu sprengistjörnunnar dofna hægt og rólega með árunum en nú hefur hún dofnað svo mikið að hún sést varla á myndinni. Þrátt fyrir það hafa stjörnufræðingar fundið út ýmis smáatriði um stjörnuna sem sprakk. Fyrir dauða sinn var hún risavaxin — meira en átta sinnum stærri en sólin okkar!

Þótt á ljósmyndinni sjáist kannski ekki ljós sprengistjörnunnar eru önnur áhugaverð smáatriði greinileg. Þessi vetrarbraut er þekkt sem þyrilvetrarbraut eins og sú sem við búum í. Hún dregur nafn sitt af þyrilörmunum sem við sjáum hverfast um bjarta miðju vetrarbrautarinnar. Þyrilarmarnir eru úr björtum, bláleitum, ungum stjörnum, glóandi gasskýjum og dökkum rykslæðum.

Fróðleg staðreynd

Ein sprengistjarna getur gefið frá sér meiri orku en sólin gerir á allri ævi sinni. Samt getur sólin okkar lifað í meira en 10 milljarða ára!

This Space Scoop is based on a Press Release from ESO .
ESO
Mynd
Prentvæn útgáfa

Enn forvitin(n)? Lærðu meira...

Hvað er Space Scoop?

Lærðu meira um stjörnufræði

Veitir næstu kynslóð geimkönnuða innblástur

Vinir Space Scoop

Hafðu samband